Önnu(r) tilraun

Blogg er nauðsynlegt

07.02.2010 17:16:28 / annabjo

Strált blogg

Tími ekki að sleppa þessu bloggi þó ég hafi vanrækt það mjög. Þetta var fyrsta bloggið sem ég hélt við að staðaldri. Svo ég leit við og breytti útlitinu svona upp á grín.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2009 16:29:15 / annabjo

Bloggleiði

Tók mér smá bloggfrí á Moggablogginu um daginn og það er alveg ótrúlega hressandi. Var búin að fá slatta af þráspyrjandi fólki yfir mig, sem tók hálfu og heilu dagana að svara, af því ég er samviskusamur bloggari. Þetta blogg er svolítið verndaðra og færri sem vita um þessa slóð -  þannig að þið sem fylgist með blogginu mínu á annað borð megið allt eins búast við því að ég noti það, ef ég fæ mikla bloggþörf skyndilega yfir mig. Ekki í bili. En sjáumst á Facebook og kannski líka á Twitter!

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 01:35:39 / annabjo

Byltingarstjórnin (nokkurs konar)

Hálfpartinn (VG-megin) má segja að byltingarstjórn hafi tekið völdin núna. Stjórnin sem nú er að taka við er afrakstur búsáhaldabyltingarinnar. Jóhanna er mjög spennandi leiðtogi og ég vona sannarlega að þessi stjórn verði farsælust allra okkar ríkisstjórna sem setið hafa. Ekki veitir af.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.12.2008 21:52:21 / annabjo

Gleðilegt ár og takk fyrir öll gömlu og góðu - og líka það sem er að líða

Mig langar bara að óska ykkur öllum, sem hafið aðgang að þessu faldara bloggi mínu, gleðilegs árs og þakka ykkur fyrir allt gamalt og gott.

Ari var að ökklabrjóta sig frekar illa fyrir ykkur sem ekki vitið nú þegar, aðeins rúmir tveir sólarhringar síðan, datt af hestbaki eftir smá ágreining við hestinn um hvert skyldi halda. Það er bara í takt við annað á þessu ári.

Þetta ár sem er að renna sitt skeið hefur verið mörgum erfitt, og ég leyni því ekki að ég heilsa nýju ári með smá ugg í brjósti, því verkefni, sem ég var beðin um að taka að mér í haust og átti að taka við þegar núverandi aðalverkefni mínu, Álftaness sögu viðbótinni, sleppti, er ekki orðið fast í hendi. Enn hef ég um sex til átta vikur til þess að finna mér annað ef þetta bregst en þetta er ekki beinlínis óskastaðan, síst í þessu árferði. Reyndar er ég búin að vinna mér í haginn við annað verkefni, sem gæti orðið eitthvað úr, en ekki strax. Hef alla vega ekki setið aðgerðalaus.

Samt verð ég að viðurkenna að ég sé mest eftir Kanarí-ferðinni sem mér sýnist að fari fyrir lítið þennan veturinn. En maður verður víst að sníða sér stakk eftir vexti, ef ég allt í einu stekk er það vonandi vísbending um að allt hafi farið á skásta veg - en ekki skyndilegt ábyrgðarleysi.

En mig langar í lokin að rifja upp þetta góða frá árinu:

  • Fjölskylduna mína góðu.
  • Vinina góðu.
  • Síðustu stærðfræðiprófin sem gengu ótrúlega vel.
  • Lesblindugreininguna mína (já það er stundum gott að koma hlutum á hreint).
  • Yndislega (ljúfsára) Kanaríferð
  • Námslok og útskrift í júní (var reyndar fjarstödd í Ungó)
  • Ungverjaland og blíðviðri í júní hjá Hönnu
  • Yndislegt sumar hér suðvestanlands sem ég naut í botn uppi í sumarbústað - með net og vann mikið þar
  • Frábæra heimsókn til Nínu í haust, þar sem ég var hátt á þriðju viku.
  • Heimsókn til Elfu í bakaleiðinni, líka frábært.
  • Smá verkefni sem ég er að vinna í fjölskyldunni og gengur bara vel (ekki búið).
  • Endurkomu í myndlistina.
Gleðilegt ár! Vona sannarlega að árið 2009 verði okkur yndislegt!



» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 01:51:25 / annabjo

Banastuð

Ekki forsvaranlegt að skilja bloggið eftir svona dapurlegt með smá óstuði í fyrirrúmi, einkum í ljósi þess að ég hef verið í banastuði að undanförnu. Myndlistin er í hreinni uppsveiflu og fleira veldur þessu stuði. En meira um það á Moggablogginu, þar eru líka myndir af nýjustu myndunum mínu, svona fyrir þá sem hafa áhuga, það þarf að fletta smávegis niður, en ekki mikið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 19:15:32 / annabjo

Smáóstuð

Hálf lurkum lamin eftir törn sem ég tók á laugardaginn, ekki fleiri orð um hana, en svo var þetta auðvitað fín helgi, en ég þarf að koma mér í gang í vinnutörn aftur, aðeins verið að sinna öðru og má ekki við því lengur. Verður allt skárra þegar ég finn mér vinnufrið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 03:53:08 / annabjo

40 ár síðan pabbi dó - en dagurinn góður og Obama að vinna

Það er í rauninni bæði nálægt og langt í burtu í tíma en á kosningadeginum mikla í Ameríku voru líka 40 á liðin síðan pabbi dó. Ég fór degi fyrr, á 89 afmælisdeginum hans, í kirkjugarðinn, eins og ég reyni að gera á afmælinu hans og um jólin, með kerti að setja á leiðið hans og Dolindu, mömmu hennar Elísabetar systur. Þrátt fyrir hvassviðrir tókst mér að láta loga á útikerti og þurfti reyndar tvö kerti, annað skýldi hinu, og á endanum logaði vel á báðum, þannig að ég skildi bara bæði eftir, þá hefur annað alla vega logað nóttina, treysti því.

Maður verður að minna sig á það að pabbi væri orðinn 89 ára hefði hann lifað lengur, svo það er ekkert víst að hann hefði vakað með okkur til þess að fylgjast með heimsviðburðunum, kosningunum í Bandaríkjunum, þar sem afkomendur hans berjast hressilega í liði Obama.


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2008 03:47:57 / annabjo

Blúsað blogg

Smá blúsað blogg hérna megin, minni (miklu minni) umferð hér en á Moggablogginu mínu og ég hef haldið persónulegra bloggi hérna megin, greinilegt að ég lifi ekki miklu ,,persónulegu" lífi. En sem sagt, það er ekki hægt að lýsa því hvernig það er að vera staddur erlendis þegar svona áföll dynja á landinu og þjóðinni okkar og ég er hrædd um að þessi afmælisdagur, svarti mánudagurinn 6. október, verði Nínu systur alltaf minnisstæður. Ég hafði það óskaplega gott í Ameríku, mest hjá Nínu og Annie auðvitað, þar sem ég dvaldi lengst og var mest ,,heima" en það var líka gaman að fara í barnaafmæli Owens sonar Sóleyjar systurdóttur líka og loks til Elfu vinkonu.

Mér hefur sjaldan þótt ég jafn lengi í burtu þótt þetta væru nú ekki nema 23 dagar og nóg að gera, vannst vel þar, eiginlega betur en hér heima, þó ég haldi sjó í verkefnum hérna. Gott að hitta Ara minn og Óla minn og geta kjaftað meira við Hönnu en meðan ég var í USA. Kom einmitt heim þegar raunveruleikinn var að hellast yfir alla og er sjálf að átta mig á því hvað allt er breytt. Og verst að allir eru sammála um að ekki séu öll kurl komin til grafar. Vona samt að bjartsýnin aukist í heiminum með kjöri Obama og það smiti alla leið hingað til Íslands. Ég bölva Bretunum auðvitað eins og aðrir Íslendingar, þótt ég sé að eðlisfari frekar hrifin af breskri menningu, og skemmti mér vel við að segja Ameríkönum þorskastríðssögur, merkilegt að þeim fannst það eiginlega bara mjög gott, rétt eins og þeir væru nýbúnir að fá sjálfstæði frá Englandi.

En sem sagt, þótt við deilum bara smærri tjónum með öðrum Íslendingum, áttum ekki næga sjóði til þess að tapa stórt ;-) þá er skrýtið að vera hluti af svolítið blúsaðri og rosalega ráðvilltri þjóð. En svona er þetta bara, auðvitað gaman af kaldhæðninni, en mér finnst raunveruleikinn einmitt vera að yfirtaka það allt saman, nema kannski indefence.is

Og svo í guðanna bænum: Ekki nota þetta ástand til þess að troða okkur í ESB eða fara að virkja seinustu fallvötnin og byggja einhverja heimskulega stóriðju, nóg er komið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 01:19:15 / annabjo

Ágústblogg

Spurning hvort sumarið er að yfirgefa okkur með þessari rigningartíð. Ef svo er þá er ég alls ekki nógu sátt við það. Hins vegar er þetta sumar búið að vera alveg ótrúlega gott, þannig að auðvitað er engin ástæða fyrir að kvarta. Framundan er spennandi vetur með spennandi verkefnum, því er ekki að neita. En hvernig líst okur á að fá svona smá ,,indian summer" í september og halda dauðahaldi í sumarið okkar góða?

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 23:49:30 / annabjo

Nokkur orð um framkvæmdir

Þá erum við fjölskyldan enn og aftur byrjuð í einhverjum framkvæmdum, þessar voru reyndar orðnar ansi brýnar, það er að mála húsið. Svolítið óörugg með hvernig okkur mun takast til, þetta er ansi mikið sull, en ég treysti því nú samt að við klárum málið sómasamlega.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 14:38:14 / annabjo

Læknisfræðin í Debrecen er dauðans alvara

Við erum búnar að eiga góða daga hér í Debrecen, mæðgurnar, en það er alveg á hreinu að námið hennar Hönnu er mjög erfitt, og skólinn geysilega strangur. Ef einhver heldur að það sé verið að sleppa létt með því að fara hingað til Debrecen, samanborið við að fara í læknisfræði heima á Íslandi, þá held ég að sá hinn sami ætti að kynna sér málið ögn skár. Hér eru sambærilegir kúrsar á við kúrsa heima, sama námsefni, sömu kröfur, að skila minna en helmingi þeirra eininga sem fást á Íslandi.

Prófafyrirkomulagið er mun skynsamlegra en heima, yfir námstímabilið eru öll skrifleg próf keyrð vikulega og nemendur ákveða sjálfir hvenær þeir þreyta próf í hinum ýmsu greinum. Þeir fá þrjá sjansa, A, B og C sjans, og Hanna er búin að ná þremur prófum af fjórum í A sjans, en eitt af þeim erfiðustu á námsferlinum er hún að taka í C-sjans á morgun og við skulum vona að allt gangi vel. Hún er búin að lesa og lesa og lesa og lesa fyrir það próf. En próftímabilið, þótt það standi í 6-7 vikur, dugar ekki fyrir öll prófin ef eitthvað fer ekki eins og fólk ætlar og algengt að tímabilinu sé að ljúka og ekki búið að taka öll prófin sem meiningin var að þreyta. Hanna metur það svo að henni dugi ekki þær tvær vikur sem eftir eru til að lesa fyrir seinasta prófið, og það eru auðvitað vonbrigði, einkum þar sem áhöld eru um haustpróf. En þetta skýrist fljótlega, alla vega þá heldur hún galvösk áfram þessu erfiða en áhugaverða námi.

Ég var að reyna að lesa fyrir hana upp úr eldri prófum (reyndar ansi illa ljósrituðum) en það var mjög þreytandi fyrir okkur báðar því næstum helmingur af öllum orðum sem koma fyrir eru eins og hebreska fyrir mig, og þykist ég þó nokkuð góð í ensku og enskum framburði. Pikkaði upp slatta að spurningum og það var fljótlegra en að lesa þær.

Sem betur fer halda Íslendingarnir hér haus. Sumir hafa auðvitað hætt, eins og gengur, það er eðlilegt. Ég segi þetta af gefnu tilefni, því ein af skólasystrum Hönnu, þriðja árs nemi sem Hanna þekkti ekki, ekki íslensk, best að ítreka það, gafst upp og tók eigið líf kringum seinustu helgi. Þótt deild erlendra stúdenta sé stór þá er þetta auðvitað áfall. Ég spurði Hönnu hvort hún héldi að þetta yrði lexía um að sýna aðeins manneskjulegra viðmót, hún hélt nú ekki. Einu sem hefðu áhyggjur af þessu væru nemendur og sálfræðideildin.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 19:25:28 / annabjo

Ungverjaland í þrumum, eldingum, sól og blíðu

Nú er um það bil vika síðan ég kom hingað til Debrecen (í 3ja skiptið) og það er alltaf jafn gaman. Búið að vera gott hérna, fyrstu dagarnir uppá 36 stiga hita og sól, en við auðvitað ekki alltaf úti, ég fór þó af og til og hafði það verulega gott, en lestrarhestarnir fóru vart úr húsi. Hefur þó unnist vel hér eins og alltaf. Síðan hafa bæði komið heiftarlegar skúrir, úrhellisrigning og þrumuveður, ýmist hávær eða með eldglæringum, vantar að hafa hvort tveggja.

Annars er þetta bara vinna, vinna, vinna ... það var mikið fall í prófinu sem Hanna fór í um daginn og það fyrsta í þessari törn sem hún þarf að endurtaka. Fólk er oft að taka próf þrisvar og stundum dugar það ekki til, en hún tóku fyrstu tvö prófin í A-sjans, sem sagt náði í fyrsta. Vona að það sé ekki tilkoma mín hér sem veldur að henni gekk ekki eins vel seinast, en nei, held nú ekki, það gekk mjög mörgum öðrum illa líka. Og nú er bara áframhaldandi lestur hjá Hönnu og vinna hjá mér. Þrjú verkefni í gangi, tvö á lokaspretti og eitt á byrjunarstigi, allt mjög gott og eitt væntanlega í uppsiglingu. Nóg að gera alla vega, gott að hafa vinnu sem hægt er að vinna hvar sem er.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 22:48:51 / annabjo

Var beðin að færa lokafyrirlesturinn - þannig að hann verður 29.maí klukkan 15:00

Ég var beðin að færa lokafyrirlesturinn - þannig að hann verður 29.maí klukkan 15:00, þá er Meistaradagur verkfræðistofnunar, eins og það heitir í bréfinu sem ég fékk. Alla vega, þá færist útskriftin sjálf ekkert til og ég fer áleiðis til Ungverjalands daginn eftir. Útskriftin sjálf er 14. júní og ég hef í rauninni enga skoðun á því hvort ég verð komin heim þá eða ekki. Það kemur bara í ljós, fer eftir próftörninni hjá Hönnu. Ég er búin að trítla þarna upp á svið í tvígang í útskrift, bæði vegna BA prófsins 1978 og cand mag prófsins 1985, þannig að það er bara: ,,Been there, done that!"

Hins vegar er gaman að vera búin að klára þetta dæmi, auðvitað smá fiðringur að eiga erindið mitt eftir (það hefði svo sem verið gaman að klára það í dag).

Kem við í London og skrepp vonandi í Foyles og svo langar mig að kaupa Halwa í Harrods, ef ég finn það, þeir eru alltaf að breyta um staðsetningu á þessu líbanska nammi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 16:42:52 / annabjo

Útskriftin framundan

Það er í ansi mörg horn að líta vegna útskriftarinnar framundan. Hún verður 14. júní og ég hef enga skoðun á því hvort ég verð á landinu eða ekki þann dag. Undir ýmsu komið. En alla vega það er ekki aðalatriðið, heldur lokaverkefnið mitt, sem er núna til meðferðar hjá prófdómara, búið að fá samþykki kennara, en hún á reyndar eftir að lesa seinustu útgáfu yfir, sendir mér væntanlega athugasemdir á morgun. Svo er ég að vinna að veggspjaldi (á ensku, eins og lokaverkefnið) og gera glærur (á íslensku eins og fyrirlesturinn minn). Fyrirlesturinn minn verður 26. maí næstkomandi kl. 16 og ég er enn bara að hlakka til. Kannski kemur stressið síðar.

Svo á milli gríp ég í vinnutengdu verkefnin mín, þetta er nú ekki alveg að taka allan minn tíma.Búið að samþykkja samninginn við mig í bæjarstjórn Álftaness, samhljóma meira að segja, og ég er með Sandgerðisverkefnið á fullu skriði líka. Verkefnið fyrir húsmæðrakennara (texta við kvikmynd) er ég komin með á lokastig, vantar bara hljóðupptöku með hjálp Óla.

Tölvutengt verkefni framundan í júní, líka ágætlega spennt fyrir því og segi væntanlega betur frá því seinna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 15:36:10 / annabjo

Fráfall Ása og framtíðarpælingar

Veikindi Ása sem ég gat um í seinasta bloggi voru skæðari en nokkurn gat órað fyrir og hann dó 26. apíl síðastliðinn. Hans er sárt saknað. Ég birti minningargreinina okkar á Moggablogginu í fyrradag, sama dag og hún birtist í Morgunblaðinu. Í gærmorgun var það staðfest að ég væri komin nógu langt með lokaritgerðina mína til þess að ég væri að útskrifast í júní, alla vega má mikið fara úrskeiðis á lokasprettinum til að það gangi ekki eftir. Ef ég fer til Hönnu þá verður það ekki fyrr en efti 26. maí, því fyrirlesturinn minn um lokaverkefnið er tímasettur þann dag. Reyndi að hnika þessu framar en það var ekki hægt. Upphaflega átti þetta reyndar að vera 29. maí en ég fékk þessu þokað lítillega fram. Margt sem spilar samt inn í hvort ég er að stefna til Hönnu eða ekki, en finnst það samt líklegra en ekki. Við tökum stöðuna seinna. Ég hætti að blogga á tímabili á Moggablogginu, þar sem ég er aðallega þessa dagana, en er byrjuð aftur núna. Það var einfaldlega ekki hægt að blogga meðan veikindi Ása voru að versna svona mikið og fyrst eftir fráfall hans var í nógu að snúast, þótt við höfum sem fyrr haldið okkur á hliðarlínunni í þeim efnum. Mikið vona ég að börnin hans og fjölskyldurnar verði farsæl í sínum skrefum á næstunni, þau eru yndisleg en þau hafa gengið í gengum allt of þynga raun og það hefur áhrif á þau, og svo að hafa hvorki móður né föður lengur til staðar, það er auðvitað erfitt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 30